selastelpur



miðvikudagur, október 25, 2006
 
Hverjar eru líkurnar á því að það verði önnur færsla hér á síðunni áður en mánuðurinn er liðinn... I think the chances are slim to none, with the accent on none! Hvað þá líkurnar á bloggi fyrir áramót!!! Dyggir lesendur ættu kannski að leyta annað að æti...

mánudagur, apríl 24, 2006
 
Mig dreymdi í nótt að Auður kæmi upp að mér og segði mér að hún væri að blogga reglulega hingað inn... Ég átti svo sem ekki von á því að sjá margar nýjar færslur en þó er hér ein frá henni á nýju ári ;)

föstudagur, mars 17, 2006
 
Það er árið 2006. Kominn tími á nýja færslu? Ég held það!

fimmtudagur, júlí 28, 2005
 
Eyjan hún kallar til mín, hún kallar, hún kallar, hún kallar og hún kallar....

Húkkarinn í kvöld og engin selastelpa sem ætlar að vera viðstödd fyrir hönd okkar í danum þetta árið :( Þetta er náttúrulega til háborinnar skammar. Við Hill mættum bara tvær í fyrra en það var samt ekkert verra en öll hin árin, bara öðruvisi. Ég er að spá í að senda húfuna og jakkann minn með eikkurum til eyja, þau (jakkinn og húfan) eiga skilið að fara. Held samt að ég hafi hvorki sett upp húfuna né klætt mig í jakkann í fyrra, en þau (jakkinn og húfan) komu þó með, það er fyrir öllu. Það verður ekkert sándtékk og engin hæð, ekkert fjöllin hafa vakað... í ár o.sv.fr. Er samt ekki alveg að átta mig á því að ég er ekki að fara, búúhúú...

laugardagur, júlí 23, 2005
 
Úlla...

fimmtudagur, júlí 14, 2005
 
Sjæse erum við orðnar/að verða KONUR

Híhíhíhí... já síðasta færslan mín átti ekki að vera nein leynifærsla, en HJÚKKIT (í sinni upprunalegu merkingu) að hún er komin í dagsljósið (það er nefninlega svo mikil umferð hérna) !
Annars sé ég Auður að þú ert búin að laga yfirskriftina í Selastelpur vs. SelaKONUR. Kannski vel við hæfi þar sem að í gær var ég einmitt stödd fyrir framan afgreiðsluborð og þar var stúlka við störf og hún þurfti að hringja í bossinn sinn þar sem að ég var með erfiða fyrirspurn. Stúlkan talaði alltaf um mig sem KONU. Ég átti ákaflega erfitt með að meðtaka þetta. Ég hef nú sjaldan verið talin KONUleg. Mér finnst ég bara ennþá vera sama stelpan og ég hef alltaf verið. Er mar ekki bara KONA fyrst þegar maður er 30 ára?!?!?!?!

KRÓKURINN HÉR HVAR OG HVENÆR SEM ER ÉG KOMIN ER Í GAMLA "BLOGG"FORMIÐ!!!!!

BÆJÓ


þriðjudagur, júní 28, 2005
 
To be or not to be/To blog or not to blog

Gaman að logga sig hérna inn og finna leynifærslu frá Sterunni sem ég hafði ekki séð einhverra hluta vegna! Ég hef nú ekki orðið vör við þetta bláa reiðhjól... hef hinsvega litið augum bláan Mustang sem gæti gert góða hluti fyrir okkur dömurnar ef Hill þorir að bjóða okkur á rúntinn ;)

Í gær sætti ég mig við það að ég er orðin kona en er ekki stelpa lengur. Fór á snyrtivörukynningu og fjárfesti þar í hrukkukremi (örugglega því fyrsta af mörgum). Það er víst sagt að allar konur eigi að nota svoleiðis frá 25 ára aldri svo ég ákvað að vera ekkert að bíða í þessa tvo mánuði sem vantar uppá, best að byrja bara með smá forvarnarstarfsemi!

Þangað til næst: Lifið heil!

miðvikudagur, febrúar 02, 2005
 
Yo yo... my girls... Alltaf jafn mikið að gerast hérna inni. En þar sem að það er kominn febrúar 2005 og enn hefur engin færsla litið dagsins ljós á nýju ári, þá ætla ég bara aðeins að steikja ykkur hérna. Vona að þetta ár verði betra en síðasta ár, þar sem að það var frekar sjeikí. Ekki að það hafi verið alslæmt, alls ekki. Sérstaklega ekki nóttinn með... nei nú er ég bara að skálda og komin í ruglið. Hehehehe... annars þá sé ég blátt reiðhjól á þessu ári, já það mun koma mikið við sögu í ár. Átta mig nú samt ekki alveg á því en það er ekki langt í að það dúkki upp, held að Elísa eða Sweif muni fyrstar fara á bak. Hill.. það er spurning með hana, það gæti orðið aðeins seinna og sömuleiðis Auður hún á þó eftir að laga keðjuna þegar að hún bilar. Ég þori varla að tala meira um þetta þar sem að ég gæti verið að misskilja þetta. Annars eru tveir litli kópar væntanlegir til okkar í lok sumars. Svo má auðvitað ekki gleyma hinum tveim sem við eigum nú fyrir ;) Allir vera ahhh við kópana. Birna hyrna, hún er sko alveg óútreiknanleg, það e ekki hægt að spá fyrir hana, hún mundi ekki standa við það. Er samt með einn lítinn spádóm en best að segja sem minnst. Wtf. held ég segi skilið við völvuna í bili og taki upp fyrri störf. Sææælaaar...

þriðjudagur, október 19, 2004
 
Fyrirgefðu...

Ertu að lyfta? Verið viðbúnar því eftir nokkrar vikur verður þessi spurning orðin ansi þreytt. Já, það er kominn tími til að hrista rykið af strigaskónum, troða sér í hjólabuxurnar, ná í Ab-Flex tækið inní geymslu og fara að taka aðeins á því! Fann flotta work-out rútínu á vafri mínu um netið, kíkið á þetta. Takið sérstaklega eftir flotta flengihandamúvinu, ég hélt ég yrði ekki eldri! Sem væri fínt þar sem ég er nú alveg orðin nógu ands**** gömul!


mánudagur, október 04, 2004
 
Mar verður að halda essu gangandi!!! Ég er alveg sammála síðasta ræðumanni með spurninguna: "á maður ekkert að fá að ríða hérna??" Hvar eru allir smiðirnir?? Hef ekki rekist á einn einasta trylltan smið úr Bykó, síðustu mánuðina. Nenniði samt að segja Viggni og Rikka að mæður þeirra séu að kalla. Var það svo ekki málið að fara draga línurnar eikverstaðar og setja mörkin!?!? Hef heldur ekki rekist á nein net og hvað þá gildrur í brekkunum, hvað á það að þýða? Eyjahláturinn, hvar í fokkinu er hann! Tantraleikfimin er hún ennþá iðkuð? Lítið verið að fara á selveiðar, kópaveiðar svo ég tali nú ekki um rostungana. Sjiii... Hef ekki heyrt frá hvalveiðiráði í hátt á annað ár. Skömm að þessu, eins og þetta voru nú skæðir veiðimenn á sínum tíma. Það er spurning um að fara að taka sig saman í andlitinu og standa undir nafni. Eða ekki, hmmm... nei mar smyr sig bara... Jæja spurning um að slútta essu, en munið bara: sjó somm fokking ríspekt end stei blekk.